Erlent

Sömdu um lífrænt eldsneyti

Bush og Lula Eitthvað var faðmlagið nú vandræðalegt.
Bush og Lula Eitthvað var faðmlagið nú vandræðalegt. AP

Forsetar Bandaríkjanna og Brasilíu undirrituðu í fyrradag samning um framleiðslu á lífrænu eldsneyti, etanóli eða vínanda.

Þeir George W. Bush Bandaríkjaforseti og Luiz Inacio Lula da Silva Brasilíuforseti vonast til að etanólið geti að hluta til komið í staðinn fyrir olíu og bensín.

Andstaða við Bush er mikil í Brasilíu og víðar í Suður-Ameríku, en Brasilía er fyrsta landið sem Bush heimsótti á vikulangri ferð sinni um álfuna í því skyni að bæta ímynd Bandaríkjanna þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×