Erlent

Gore biðlaði til þingsins

AP

Al Gore fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna biðlaði í gær til Bandaríkjaþings um að grípa til aðgerða gegn loftslagsbreytingum. Hann kom fyrir þingið og kynnti þar helsta rökstuðning sinn úr heimildamyndinni „Óþægilegur sannleikur".

Gore sagði að Bandaríkin þyrftu þegar í stað að efna til aðgerða til að minnka losun koltvísýrings út í andrúmsloftið og að þau ættu að vera leiðandi í gerð nýs alheimssáttmála sem koma ætti í stað Kyoto-bókunarinnar, sem Bandaríkin hafa ekki átt aðild að, fyrir árið 2012.

Heimildamynd Gores vann til tvennra Óskarsverðlauna nú í febrúar, sem besta heimildamynd og fyrir besta frumsamda lag í kvikmynd. Þá mælist Gore sem einn vinsælasti kandídatinn fyrir forsetakosningar á næsta ári, þó svo að hann hafi gefið það frá sér að hann muni bjóða sig fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×