Kaldar kveðjur frá Persson valda usla 22. mars 2007 06:15 Göran Persson og Mona Sahlin Sahlin tók við af Persson sem formaður sænska Jafnaðarmannaflokksins um síðustu helgi. Hún fékk kaldar kveðjur frá honum strax eftir helgina. MYND/AP
Yfirlýsingagleði Görans Persson, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, í sjónvarpsþætti á mánudagskvöldið hafa valdið töluverðu fjaðrafoki í sænskum stjórnmálum. Persson fór þar hörðum orðum um Monu Sahlin, Carl Bildt og fleiri stjórnmálamenn, jafnt samherja sem andstæðinga. Persson virðist ekki hafa mikið álit á Sahlin, sem tók við formennsku í Jafnaðarmannaflokknum um síðustu helgi – stöðu sem Persson gegndi í rúman áratug. „Styrkur hennar liggur ekki í skarpri hugsun heldur í því að koma skilaboðum áleiðis,“ sagði Persson um hana árið 1997. „Hún er álitin hæfari í stjórnmálum en hún raunverulega er.“ Sjónvarpsþátturinn, sem sýndur var á mánudag, er sá fyrsti í röð þátta sem eru byggðir á viðtölum sem fréttamaðurinn Erik Fichtelius tók við Persson á síðustu ellefu árum. Þeir hittust fimm til sex sinnum á ári, alls 57 sinnum, og upptökurnar eru samtals meira en hundrað klukkustundir. Persson mætti í viðtölin með því skilyrði að ekkert yrði birt fyrr en eftir að hann væri hættur í embætti. „Bildt er svo fjári vondur,“ sagði Persson árið 1999 um Carl Bildt, núverandi utanríkisráðherra. „Ég veit ekki hvert hann ætlar að fara og hvað hann ætlar að gera. Ég vorkenni honum.“ Carl Bildt var forsætisráðherra Svíþjóðar 1991-94 og sagði af sér sem formaður hægri flokksins Moderaterna árið 1999 eftir að hafa tapað kosningum gegn Jafnaðarmönnum undir forystu Perssons. „Mér finnst ég bera ábyrgð á honum,“ sagði Persson. „Við höfum boðið honum nokkur störf en hann hefur hafnað þeim.“ Þá er Persson ómyrkur í máli um Gudrun Schyman, fyrrverandi leiðtoga Vinstriflokksins, sem Jafnaðarmenn störfuðu með árum saman. „Ég myndi ekki treysta henni ef kreppa steðjaði að Svíþjóð,“ sagði Persson. „Hún virðist vera frekar tætt og lítt þroskuð, oft hefur hún ekki þekkingu á málefnum.“ Hann segir að hún hafi misst stjórn á sér einu sinni á fundi flokksleiðtoga áður en Svíþjóð tók við formennsku í Evrópusambandinu. Þegar talið barst að vændi hrópaði hún æst: „Þið karlar skulið sko ekki halda að þið komist upp með að ríða bara hverjum sem er.“ „Þetta var mjög undarleg uppá-koma,“ sagði Persson í sjónvarpsþættinum.
Mest lesið Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Innlent Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Innlent Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Erlent Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Erlent Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent „Ég held ég hafi migið í saltan sjó“ Innlent Einn leikskóli inn, annar út og starfsemin á flakki milli húsa Innlent Gaf spellvirkjunum bakkelsi eftir að lit var skvett á heimilið Innlent Sigríður Björk og Jón Karl til Bessastaða Innlent Vísar gagnrýni á bug og gefur lítið fyrir rök lækna Innlent Fleiri fréttir Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Sjá meira