Erlent

Ná illa saman um þvinganir

Frá götum Teheran í Íran
Frá götum Teheran í Íran Getty Images

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna reynir enn að ná saman samkomulagi um hertar efnahagsþvinganir á Íran vegna kjarnorkuáætlunnar þeirra. Löndin fimm sem eiga fastafulltrúa hafa reynt árangurslaust undanfarið að ná víðtækri sátt í ráðinu um uppkast að ályktun.

Íranir hafa ekki sýnt nein merki um annað en að þeir ætli að halda áætlunum sínum til streitu, sama hvaða þvingunum þeir mæti. Þá hafa þeir þvertekið fyrir að kjarnorkuáætlun þeirra miði að smíði kjarnavopna, tilgangurinn sé algjörlega friðsamlegur.

Búist er við því að ef ekki náist fljótlega samkomulag innan öryggisráðsins um þvinganir muni Bandaríkin, Frakkland og Bretland fara í hart og láta kjósa um ályktun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×