Erlent

Íraksstjórn ræðir við uppreisnarhópa

AP

Hafnar eru viðræður á milli Íraksstjórnar og nokkurra hópa uppreisnarmanna í landinu. Enginn þessara uppreisnarhópa hefur tengsl við Al-Kaída og talið er að sumir þeirra séu tilbúnir til að leggja niður vopn og taka þátt í baráttunni gegn Al-Kaída með ríkisstjórninni.

Í gær sagði Tarek Hashemi varaforseti Írak að eina leiðin til að friður kæmist á í landinu væri að ræða við alla hópa uppreisnarmanna, þó fyrir utan Al-Kaída. Embættismenn þvertaka þó fyrir það að það eigi að gefast upp eða sýna uppreisnarmönnum linkind, stundum séu bara samningaviðræður besta leiðin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×