Erlent

Þverpólitísk sátt um breytingar

Jens Stoltenberg Forsætisráðherrann vildi þverpólitíska langtímasátt.
Jens Stoltenberg Forsætisráðherrann vildi þverpólitíska langtímasátt. MYND/Vilhelm

Þverpólitísk sátt hefur náðst á norska Stórþinginu um endurbætur á lífeyriskerfi landsins. Markmiðið með breytingunum er að tryggja fólki sanngjarnan lífeyri sem hægt er að lifa af en búa samt þannig um hnúta að eldri launþegar hafi hvata til að fara frekar seinna en fyrr á eftirlaun.

Ríkisstjórnin hefði getað ákveðið breytingarnar einhliða, í krafti þingmeirihluta síns, en kaus að leita víðtækrar sáttar allra flokka um málið til að tryggja að hið endurskoðaða kerfi stæði óhaggað til lengri tíma þótt breytingar kynnu að verða á samsetningu þingmeirihlutans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×