Erlent

Kosið um nýjar flugreglur

Getty Images

Samgönguráðherrar Evrópusambandsins kjósa í dag um nýja flugreglugerð sem á að miða að því að létta regluverkið um flug yfir Atlantshafið. Reglugerðin gerir ráð fyrir því að flugfélög Evrópu megi fljúga yfir Atlantshafið frá öllum löndum Evrópusambandsins en í dag þurfa þau að leggja upp frá heimalandinu.

Þetta er gert til þess að lækka verð, auka samkeppni og fjölga farþegum. Bresku risaflugfélögin British Airways og Virgin Atlantic hafa mótmælt reglugerðinni af mikilli hörku enda þessi flugfélög leiðandi í flugi yfir Atlantshafið. Þau segja að með nýjum reglum verði bandarískum flugfélögum gefið of mikið eftir. Langflest önnur flugfélög Evrópu taka reglugerðinni fagnandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×