Erlent

Hátt í helmingur neikvæður

Samkvæmt niðurstöðum viðhorfskönnunar, sem breska blaðið Financial Times gerði í fjölmennustu löndum Evrópusambandsins, er óvenjumikil neikvæðni í garð Evrópusambandsins ríkjandi nú þegar haldið er upp á 50 ára afmæli sambandsins.

Um 44 prósent aðspurðra sögðust telja að þróunin í landi þeirra hefði snúist til hins verra frá því það gekk í ESB. Aðeins 22 prósent sögðust þó telja ástæðu til að stefna að því að land þeirra segði sig úr sambandinu.

Neikvæðast var viðhorfið í Bretlandi en jákvæðast á Spáni, af þeim fimm löndum sem könnunin var gerð í.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×