Erlent

150.000 Ísraelar í verkfalli í gær

Talið er að 150.000 ísraelskir verkamenn hafi lagt niður störf í allsherjarverkfalli í gær. Margs konar þjónusta lá niðri á borð við flugvelli, hafnir, lestarstöðvar, stjórnarskrifstofur, banka og verðbréfamiðlanir.

Eftir átta tíma var verkfallinu aflýst þegar samningar náðust milli Histadrut-verkalýðshreyfingarinnar og stjórnvalda. Margar borgir og bæir í Ísrael hafa ekki getað greitt þúsundum manns laun mánuðum saman vegna gjaldþrots.

Laun áttu að greiðast í gær eða í dag samkvæmt talsmanni Histadrut.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×