Erlent

Grænn orkuvandi Íslendinga

Fram kemur að meira sé af grænni orku á Íslandi á borð við jökulár og jarðhita en Íslendingar gætu nokkurn tímann þurft sjálfir.
Fram kemur að meira sé af grænni orku á Íslandi á borð við jökulár og jarðhita en Íslendingar gætu nokkurn tímann þurft sjálfir. MYND/GVA

Ísland er sagt standa frammi fyrir „grænum“ orkuvanda á fréttavef BBC. Segir í fréttinni að þó að Íslendingum sé umhugað um að nýta endurnýjanlega orkugjafa sem landið er ríkt af út frá hagnaðarsjónarmiði spyrji gagnrýnendur hvort það sé þess virði að fórna svo miklu óspilltu landsvæði.

Fréttamaður BBC ræðir við Sigurð Arnalds, talsmann Landsvirkjunar, og Ómar Ragnarsson um áhrif Kárahnjúkavirkjunar.

Sigurður bendir á að í hnattrænu tilliti sé hér um endurnýjanlega orkugjafa að ræða. Kemur fram að áætlað sé að með því að nota slíka „hreina“ orku dragist losun kolefnis við álframleiðslu saman um níutíu prósent.

Ómar segir að framkvæmdirnar vegna Kárahnjúkavirkjunar valdi mestu óafturkræfu áhrifum á umhverfi Íslands sem hugsanleg séu. Er hann sagður, líkt og aðrir andstæðingar virkjunarinnar, ekki jafn áhyggjufullur yfir mengun frá verksmiðjunum sjálfum eins og af umhverfisáhrifum af því að nýta vatns- og gufuafl til að knýja þær.

Fréttamaður BBC segir erfitt að finna nokkurn íbúa í nágrenni virkjunarinnar sem sé andvígur henni en svo virðist sem ríkisstjórnin sé að endurskoða stefnu sína um að laða þungaiðnað til landsins. Vitnar hann í ummæli Jóns Sigurðssonar, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, um að engin þörf sé á að laða meiri þungaiðnað til landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×