Erlent

Bannið tekur gildi í ágúst

Reykingum úthýst. Til stóð að danska bannið tæki gildi 1. apríl.
Reykingum úthýst. Til stóð að danska bannið tæki gildi 1. apríl. MYND/AP

Yfirvöld í Danmörku hafa ákveðið að bann við reykingum á opinberum stöðum, veitinga- og vínveitingastöðum taki gildi um miðjan ágúst næstkomandi, í stað 1. apríl eins og til hafði staðið.

„Reykingar verða ekki lengur heimilar innandyra á vinnustöðum, í menntastofnunum, almenningssamgöngum og matsölustöðum,“ sagði Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra á vikulegum blaðamannafundi sínum.

Gildistökunni var frestað til að gefa veitingahúsarekendum meiri tíma til að innrétta aflokaða aðstöðu fyrir reykingafólk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×