Erlent

Cutty Sark skemmist illa í eldi

Cutty Sark brennur í morgun.
Cutty Sark brennur í morgun. MYND/AP

Eitt af þekkstustu skipum Bretlands, Cutty Sark, skemmdist mikið í miklum eldi í Lundúnum í nótt. Skipið, sem er eitt af síðustu stóru seglskipunum sem byggð voru á á 19. öld í Bretlandi, hefur verið til sýnis í Greenwich og verið vinsælt meðal ferðamanna.

Tilkynnt var um eldinn um fjögurleytið að íslenskum tíma í morgun og var eldurinn það mikill að íbúar í nærliggjandi húsum voru beðnir um að yfirgefa heimili sín. Þá var miðbæ Greenwich lokað um tíma.

Lögregla og slökkvilið rannsaka nú eldsupptök og er ekki útilokað að kveikt hafi verið í skipinu, en samkvæmt eftirlitsmyndavélum var einhver á ferli nærri skipinu þegar eldurinn kom upp.

Cutty Sark var smíðað árið 1869 og var notað til teflutninga frá Kína til Bretlands. Skipið hafði verið lokað fyrir ferðamönnum að undanförnu vegna endurbóta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×