Enski boltinn

City nær samkomulagi við Juventus um kaupverð á Bojinov

Aron Örn Þórarinsson skrifar
NordicPhotos/GettyImages

Manchester City hefur náð samkomulagi við Fiorentina um kaupverð á búlgarska framherjanum Valeri Bojinov. Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum borgar City 5,7 milljónir fyrir kappann. Bojinov, sem er aðeins 21 árs gamall, gekk til liðs við Fiorentina frá Lecce árið 2005 fyrir 10 milljónir punda, en þar fékk hann lítið að spila.

Þegar Luca Toni kom til Fiorentina seinna þetta ár náði Fiorentina samkomulagi við Juventus og lánaði Bojinov til Juventus á meðan liðið var í næstefstu deild.

„Ég vona að ég þurfi aldrei aftur að fara til Flórens," sagði Bojinov. „Það væri frábært að komast til Englands."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×