Erlent

Tveir kúrdískir blaðamenn dæmdir til dauða í Íran

Dómstólar í Íran hafa dæmt tvo kúrdíska blaðamenn til dauða fyrir að vera óvinir guðs. Blaðamennirnir hafa tuttugu daga til að áfrýja dómnum. Geri þeir það ekki, eða verði máli þeirra vísað frá í hæstarétti verða þeir hengdir. Talsmaður dómskerfisins gat engar nánari skýringar gefið á því hvað mennirnir hefðu gert af sér, en þeir skrifuðu fyrir kúrdískt blað sem var bannað árið 2005. Samtökin Blaðamenn án landamæra hafa fordæmt dóminn, sem þeir segja svívirðilegan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×