Erlent

Áframhaldandi ofankoma í Danmörku

Frá Kaupmannahöfn í gær.
Frá Kaupmannahöfn í gær. MYND/AP

Kuldi og ofankoma herja áfram á frændur okkar Dani í dag eins og undanfarna daga og er búist við áframhaldandi töfum á flugumferð og á vegum landsins. Illviðrið hefur kostað að minnsta kosti einn mann lífið í landinu.

Ökumaður saltbíls lét lífið í nótt eftir að hann skall framan á þýskum flutningabíl á landamærum Danmerkur og Þýskalands í nótt. Þurfti að loka veginum þar sem slysið varð í nokkra tíma en það er rakið til mikillar hálku á svæðinu.

Danskir veðurfræðingar gera ráð fyrir miklu hvassviðri og snjókomu í dag á Norður-Jótlandi, Sjálandi og Borgundarhólmi og má því reikna með áframhaldandi erfiðleikum á vegum þar. Er jafnvel búist við að ástandið verði verra í dag en í gær en þá sátu fjölmargir Danir fastir á hraðbrautum vegna slæmrar færðar.

Víða er um hálfs metra djúpur snjór á Norður-Jótlandi og svipaða sögu er að segja af Sjálandi og er fólki ráðið frá því að halda út á vegi þar af þessum sökum. Við þetta bætist að um 50 flugferðum SAS frá Kastrup-flugvelli hefur verið aflýst í dag og er jafnvel búist við að fleiri flugum verði aflýst þegar líður á daginn. Samkvæmt Textavarpinu voru flugvélar á leið frá Íslandi til Danmerkur á áætlun.

Danir horfa hins vegar fram á hlýrra veður um helgina þegar það fer að rigna og þá er gert ráð fyrir sól og blíðu í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×