Upp­gjörið: Keflavík-Grindavík 94-86 | Tviburasystur í stuði og engin hefnd

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Sara Rún Hinriksdóttir og félagar í Keflavík unnu flottan sigur í kvöld en hér fagna þær sigri í bikarúrslitaleiknum á dögunum.
Sara Rún Hinriksdóttir og félagar í Keflavík unnu flottan sigur í kvöld en hér fagna þær sigri í bikarúrslitaleiknum á dögunum. Vísir/Anton

Bikarmeistarar Keflavíkur unnu Grindvíkinga í kvöld aðeins einni og hálfri viku eftir að Keflavík hafði betur á móti Grindavík í bikarúrslitaleiknum.

Keflavík vann átta stiga sigur, 94-86, í jöfnun og spennandi leik í síðustu umferðinni áður en deildinni verður skipt upp. 

Enginn lék betur en Sara Rún Hinriksdóttir sem var með 28 stig og 13 fráköst fyrir Keflavík. Tvíburarsystir hennar Bríet Sif skoraði 19 stig og Hinriksdætur voru því með 47 stig saman í kvöld.

Leikurinn fór fjörlega af stað og setti Grindavík tóninn með fyrstu fjögur stigin á töfluna. Fariya Abdi átti þau en Keflavík átti í stökustu vandræðum með hana undir körfunni.

Frábær fyrsti leikhluti hjá Grindavík sem skilaði þeim í tíu stiga forskoti á Keflavík 19-29.

Keflavík náði að keyra upp hraðann í öðrum leikhluta og átu upp forskot Grindavíkur mjög fljótt og náðu að jafna leikinn.

Eftir að Keflavík náði að jafna kom meira jafnvægi í leikinn. Grindavík náði að hægja á áhlaupi Keflavíkur og tókst að fara með þriggja stiga forskot inn í hálfleikinn 44-47.

Það var mikil barátta sem einkenndi þriðja leikhluta og bæði lið að leggja allt í þetta. Varnarleikur var allsráðandi en það var Keflavík sem náði að snúa leiknum sér í hag og þær leiddu með minnsta mun eftir þriðja leikhluta 64-63.

Keflavík náði að nýta sér fámenna róteringu Grindavíkur í fjórða leikhluta og náði að keyra upp smá hraða á þreytt lið gestana og virtist ætla að ná að hlaupa með leikinn í restina.

Grindavík gaf þó ekkert eftir og náði að jafna leikinn á nýjan leik þegar lítið var eftir. Það var þó Keflavík sem reyndist sterkari á lokasprettinum og fóru þær að lokum með átta stiga sigur 94-86.

Atvik leiksins 

Thelma Dís Ágústsdóttir klárar leikinn með risastórum þrist alveg í lokinn úr horninu fyrir Keflavík. Sókn sem virtist vera að renna út í sandinn en þær náðu að koma boltanum á Thelmu Dís sem kláraði virkilega vel.

Stjörnur og skúrkar

Systurnar Sara Rún og Bríet Sif Hinriksdætur voru öflugar í liði Keflavík í kvöld. Þær voru að setja stóru skotin og endaði Sara Rún með 28 stig og Bríet Sif með 19 stig.

Hjá Grindavík reyndust Farhiya Abdi og Isabella Ósk Sigurðardóttir Keflavík einstaklega erfiðar. Isabella Ósk endaði stigahæst á vellinum með 30 stig.

Dómararnir

Bjarki Þór, Ingi Björn og Friðrik sáu um flautuna í kvöld.

Heilt yfir fannst mér þeir standa sig bara virkilega vel í kvöld. Yfir litlu að kvarta þó einstaka atvik féllu ekki vel í kramið hjá öllum.

Stemingin og umgjörð

Hefði verið skemmtilegra að sjá fleiri andlit í stúkunni í kvöld í þessum nágranna slag. Fullt hrós á öll þau sem mættu í Blue höllina í kvöld og náðu upp fínustu stemningu. Keflavík er mikill körfuboltabær svo umgjörðin hér í Blue er alltaf upp á 10,5.

Viðtöl

Anton Brink

„Kostur að vera með marga leikmenn sem að stíga þá upp“

„Þær komu til baka þegar við vorum komnar með þetta upp í tíu og bara fullt hrós á Grindavík fyrir að ná að koma til baka spilandi bara á 6-7 leikmönnum“ sagði Hörður Axel Vilhjálmsson eftir sigurinn í kvöld sem var þrátt fyrir átta stiga mun heldur torsóttur.

„Við róteruðum vel og liðsheildin á endanum stóð uppi sem sigurvegari“

Keflavík byrjaði leikinn brösulega og voru tíu stigum undir eftir fyrsta leikhluta en hvað breyttist eftir það?

„Við róteruðum og það kom kraftur og orka af bekknum. Þær breyttu leiknum sem komu af bekknum og gerðu mjög vel“

„Þær sem að byrjuðu komu svo inn á aftur í seinni gerðu betur en í fyrsta leikhluta og það er bara hjá okkur. Maður getur aldrei átt góðan dag alla daga og þess vegna er kostur að vera með marga leikmenn sem að stíga þá upp og eru bíðandi eftir sínu tækifæri“

Hörður Axel var ánægður með varnarleikinn í seinni hálfleik og Keflavík náði að keyra upp hraða sem Grindavík hélt ekki í við.

„Mér fannst varnarleikurinn í seinni hálfleik betri en í fyrri hálfleik. Við létum boltann vinna fyrir okkur sóknarlega og það er það sem gefur okkur mörg stig. Við náðum að keyra upp hraðann á tímabili sem að þær eiga erfitt með að halda í“ sagði Hörður Axel Vilhjálmsson.

Anton Brink

„Fullt af mótlæti og ég er stoltur af þeim“

„Virkilega svekkjandi. Mér fannst við halda haus allan tímann“ sagði Þorleifur Ólafsson þjálfari Grindavíkur eftir tapið í kvöld.

„Keflavík átti fullt af áhlaupum og við byrjuðum vel. Við gáfumst ekki upp, fullt af mótlæti og ég er stoltur af þeim“

Grindavík byrjaði virkilega vel og var með öll völd eftir fyrsta leikhluta en hvað gerðist svo til að hleypa Keflavík inn í leikinn aftur?

„Keflavík hljóp mjög vel og við vorum kannski lengi til baka. Við hefðum kannski geta komið í veg fyrir nokkur hraðaupphlaup hjá þeim“

„Þær fóru að spila fastar sem er allt í lagi og ekkert óeðlilegt hjá Keflavík að það sé leyft. Það er bara eins og það er og við svona bökkuðum frá því í staðin fyrir að halda áfram að ráðast á körfuna og vera grimmar“

Leikurinn var í járnum lengst af en Keflavík náði að klára leikinn undir restina.

„Við komum til baka og sýnum svolítið tennurnar að vera einhverjum sex stigum undir og mér persónulega fannst vera brotið á Fariyu [Abdi] hérna í sniðskotinu í restina sem að hefðu átt að vera tvö stig“

„Ég vildi svo meina að það ætti að vera uppkast þegar Sara [Rún Hinriksdóttir] keyrir á körfuna en skoraði. Mér fannst vera alveg pottþétt atriði að mínu mati verða til þess að þær komast yfir og dró úr okkur tennurnar“ sagði Þorleifur Ólafsson.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira