Sarkozy fékk umboð til umbóta 8. maí 2007 06:00 Sigursæll Sarkozy. Hinn verðandi forseti, bindislaus í gallabuxum, veifar hér vegfarendum er hann yfirgaf hótel í París í gær ásamt fjölskyldu sinni. Hann hyggst verja næstu dögum í friði fyrir kastljósi fjölmiðlanna. MYND/AP
Nicolas Sarkozy, verðandi forseti Frakklands, ætlar sér engan tíma að missa í að hrinda í framkvæmd metnaðarfullum umbótum í anda markaðshyggju og baráttu gegn glæpum, en fyrsti slagurinn sem hann þarf að taka eftir að hann tekur við embætti hinn 16. maí er að berjast fyrir sigri flokks síns í þingkosningum í júní. Íhaldsmaðurinn og innflytjendasonurinn Sarkozy sigraði keppinautinn Segolene Royal örugglega með 53,06 gegn 46,94 prósentum atkvæða. Kjörsókn var 84 prósent, samkvæmt lokaúrslitum sem birt voru snemma í gærmorgun. Sigurinn færði Sarkozy skýrt umboð til að hrinda í framkvæmd sýn sinni á framtíð Frakklands: Hann vill losa um hömlur vinnumarkaðarins, kallar 35-stunda-vinnuvikuna „fáránlega" og áformar hertar ráðstafanir gegn glæpum og innflytjendum.„Forseti allra Frakka“Sósíalistar í kreppu. Segolene Royal mætir eftir tapið á flokksstjórnarfund sósíalista í París í gær.MYND/AP„Franska þjóðin hefur kosið breytingar," tjáði Sarkozy stuðningsmönnum í sigurræðu á sunnudagskvöld. Hann talaði einnig til þeirra sem kusu hann ekki og sagðist myndu verða „forseti allra Frakka, án undantekninga". Á óvart komu niðurstöður útgöngukannana sem birtar voru í gær.Samkvæmt könnun Ipsos/Dell kusu til að mynda 46 prósent opinberra starfsmanna („blákraga") Sarkozy, þótt sá hópur sé hefðbundnir vinstrikjósendur. 44 prósent fólks sem hefur úr litlu að spila kaus hann, og 32 prósent þeirra sem að öllu jöfnu kjósa græningja. Meira að segja 14 prósent þeirra sem venjulega kjósa framboð á vinstrijaðrinum kusu hægrimanninn.Umboð til umbótaÍ forsíðufyrirsögn dagblaðsins Les Echos segir: „Sarkozy forseti: víðtækt umboð til djúpstæðra umbóta í landinu." En hann á ekki auðvelt verk fyrir höndum. Bóka má að áhrifamikil verkalýðsfélögin muni beita sér af öllu afli gegn tilraunum til að lengja vinnutímann og brjóta upp rausnarlegar vinnuverndarreglur sem meðal annars gera mjög örðugt að segja fólki upp.Kosningaloforð Sarkozy gengu þó ekki eingöngu út á þessar breytingar á reglum vinnumarkaðarins, heldur lofaði hann Frökkum jafnframt að vernda þá fyrir sársaukafyllstu fylgifiskum hnattvæðingarinnar. Breytingaboðskapur hans er líka bara trúverðugur upp að vissu marki, þar sem hann hefur sjálfur lengi verið virkur þátttakandi í því stjórnkerfi sem hann hefur kennt um þær ógöngur sem hann segist vilja leiða Frakkland út úr. Í tíð hans sem fjármálaráðherra árið 2004 sýndi hann sig að vera hallan undir ríkisstýrða verndarstefnu, þar sem hann stóð vörð um innlend „forystufyrirtæki" (national champions) í iðnaði og beitti sér gegn yfirtöku erlendra aðila á frönskum fyrirtækjum, svo sem er Siemens í Þýzkalandi vildi kaupa Alstom-raftæknifyrirtækið.Óvíst um viðtökurÞað er líka aldrei að vita hvernig almenningur mun taka því, ef hann reynir með hraði að ráðast til atlögu gegn nokkrum af heilögum kúm fransks samfélags: 35-stunda-vinnuvikunni, verkalýðsfélögunum sem efna til lamandi verkfalla af minnsta tilefni eða félagslegu öryggisneti sem hefur grafið undan alþjóðlegri samkeppnishæfni fransks efnahagslífs. Fyrirheit hans um bætt tengsl við Bandaríkin gæti líka hugsanlega kostað hann fylgi snemma á forsetaferlinum.Til að kosningaslagorðið „Í sameiningu verður allt mögulegt" geti mögulega ræst verður Sarkozy að sannfæra Frakka um að hann sé í reynd maður sem sameinar en sundrar ekki. Og það er ekki að því hlaupið fyrir stjórnmálamann sem hefur á ferli sínum fram til þessa getið sér orð fyrir hörku og takmarkalausan metnað. Um umbótaáform Sarkozy var skrifað í dagblaðið Le Figaro: „Festið sætisbeltin. Þetta verður mikil rússíbanareið."Sarkozy mun eyða næstu dögum utan sjónmáls fjölmiðlanna, að sögn Francois Fillon, náins ráðgjafa hans, sem þykir líklegt forsætisráðherraefni, vinni UMP-flokkurinn þingkosningarnar 10. og 17. júní. Verðandi forsetinn hélt í gær ásamt fjölskyldu sinni frá hóteli í París til ótilgreinds hvíldardvalarstaðar, þar sem hann hyggst „slaka aðeins á ... og byrja að skipuleggja og undirbúa sitt lið," að því er Fillon greindi frá í sjónvarpsviðtali.Strax önnur kosningabaráttaAð hinum langa kosningabaráttuslag um forsetaembættið loknum gefst annars lítið svigrúm til að slaka á. UMP-flokkur Sarkozy verður að ná aftur meirihluta á þingi til að forsetinn haldi ótvíræðu umboði sínu til að hrinda umbótaáformunum í framkvæmd. Sigri vinstriflokkarnir sæti hann uppi með stjórnarsambúð við þá, sem myndi setja áformum hans miklar hömlur.Sarkozy hefur boðað mikinn framkvæmdatíma fyrstu 100 daga sína í embætti. Hann ætlar að leggja stóra umbótalagapakka fyrir þingið á sérboðuðu aukaþingi í júlí. Í þessum frumvörpum á meðal annars að gera yfirvinnu fram yfir 35 stundir á viku skattfrjálsar, til að hvetja fólk til að vinna meira. Í öðru verður kveðið á um hertar refsingar fyrir síbrotamenn, og í því þriðja yrði innflytjendum gert erfiðara að fá ættmenni sín til að flytja líka til Frakklands.ÓeirðirAð kvöldi kjördags kom til óeirða á stöku stað. Að sögn lögreglu voru 270 manns færðir til yfirheyrslu og 367 bílar brenndir. Á meðalnóttu er kveikt í um 100 bílum í landinu, einkum í úthverfum stærstu borganna þar sem arabískir og afrískir innflytjendur eru fjölmennir. Sarkozy er allt annað en vinsæll í þeirra hópi.Sem innanríkisráðherra kallaði hann einu sinni ungu óeirðaseggina „úrþvætti" sem ætti að „spúla út". Þó var eitt af því sem kom á óvart við úrslit kosninganna að Sarkozy fékk 43,5 prósent atkvæðanna í Seine-Saint-Denis-sýslu norður af París, þar sem innflytjendur eru mjög fjölmennir og atvinnuleysi útbreitt. Þar var „skjálftamiðja" óeirðanna síðla árs 2005, sem engan enda virtust ætla að taka.
Mest lesið Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðarviðræður“ Innlent „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Innlent Fangavörður sendur í leyfi Innlent Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun Innlent Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Erlent Þrjár stúlkur réðust á eina Innlent Rúta út af vegi í Fagradal og fleiri í vanda í hvassviðrinu Innlent Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Erlent Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skólakerfinu Innlent Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Erlent Fleiri fréttir Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Áhrif stóraukins geimrusls á lofthjúpinn óþekkt Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Norðaustan stórhríð hrellir íbúa austurstrandar Bandaríkjanna Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Sjá meira