Erlent

Vilja banna plastpoka

San Francisco Ap Borgaryfirvöld í San Francisco í Bandaríkjunum hafa lagt fram tillögu um að banna stærri matvöruverslunum að gefa viðskiptavinum sínum plastpoka fyrir vörur sínar.

Plastpokarnir eru sagðir eyða olíu, valda sóðaskap á götum og spilla dýralífi. Er aðgerðin liður í herför borgaryfirvalda til að mæta hlýnun jarðar.

Gerð verður sú krafa að verslanir bjóði viðskiptavinum poka sem hægt sé að endurvinna. Verslanirnar mega búast við sjö til 35 þúsund króna sektum ef ekki er farið að settum reglum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×