Erlent

Vilja binda í lög brotthvarf hers

Pelosi og Bush. Þau tókust í hendur eftir kosningasigur demókrata í nóvember.
Pelosi og Bush. Þau tókust í hendur eftir kosningasigur demókrata í nóvember. MYND/AP

Leiðtogar Demókrataflokksins á Bandaríkjaþingi vilja binda í lög tímasetningu um endanlegt brotthvarf hersins frá Írak.

Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar þingsins, skýrði frá þessu í gær.

Hún sagði að lokafrestur verði settur aftan við lög sem að meginefni veita ríkisstjórn George W. Bush þá hundrað milljarða dala sem hún fór fram á til áframhaldandi stríðsreksturs í Írak og Afganistan.

Í lögunum verður einnig krafa um að brotthvarfi hersins verði flýtt ef ríkisstjórn Íraks stendur ekki við áform um að bæta öryggisástandið í Írak.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×