Stuðningsmenn West Ham sjá eftir Eggert Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. desember 2007 13:51 Ray Tuck við barinn í klúbbhúsinu.
Ray Tuck, formaður stuðningsmannafélags West Ham, segir það sárt að sjá eftir Eggerti Magnússyni. „Hann var ekta," sagði hann við Vísi. Tuck rekur einnig barinn þar sem stuðningsmannafélagið er með bækistöðvar sínar en hann er staðsettur við Boylen Ground, heimavöll West Ham. Hann sagði að þar sem þetta var aðeins tilkynnt í gær hafi ekki neinn tími gefist til að skipuleggja sérstakar aðgerðir til að kveðja Eggert. „Þetta voru afar óvæntar fréttir og um leið vonbrigði því öllum líkaði vel við hann," sagði Tuck. „Það var gaman að vera með stjórnarformann sem var svo áberandi eins og hann var. Þeir eru svo margir sem fela sig upp á skrifstofu og láta helst aldrei sjá sig." Tuck segir að hann sjái eftir honum sem og fleiri. „Hann var mikill karakter og þurftum við á einhverjum slíkum að halda, sérstaklega síðasta tímabili. Sumir í hans stöðu sitja í heiðursstúkunni og virðast vera alveg sama um allt og alla. Eggert lifði sig hins vegar inn í leikinn og virtist vera 100 prósent ekta. Þetta snerist ekki bara um peninga hjá honum heldur gerðist hann stuðningsmaður félagsins af lífi og sál. Fyrir þessu fundu stuðningsmenn West Ham." Hann sagði einnig að honum hafi aldrei gefist kostur til að hitta Eggert þó svo að hann hafi óskað eftir því. „Það hefur verið svo mikið að gera hjá honum að það gafst ekki tækifæri til þess. En við viljum vita hvað bíður okkar eftir að félagið flytur á nýjan völl. Stuðningsmannafélagið var stofnað fljótlega eftir síðari heimsstyrjöldina og margir öfunda okkur af aðstöðunni okkar. Stuðningsmannafélagið er einnig afar vel þekkt víða um Bretland." Tuck sagði að hann ætlaði nú að reyna að funda með Björgólfi Guðmundssyni eiganda West Ham og nýjum stjórnarformanni. „Við kölluðum hann alltaf Eggbert," sagði Tuck og hló. „En við höfum í raun aldrei kynnst honum vel. En vonandi snýr hann félaginu á rétta braut."
Mest lesið „Algjörlega niðurbrotinn eftir þetta tap“ Fótbolti Gervigreindin spáir í fyrstu umferðina Enski boltinn Sjáðu upphitunarþátt fyrir enska boltann í heild Enski boltinn „Galið og fáránlegt“ Íslenski boltinn Misstu Martin út en sneru leiknum og unnu Svía Körfubolti Ótrúlegt golfhögg í reiðiskasti slær í gegn á netinu Golf Uppgjörið: Bröndby - Víkingur 4-0 | Vont kvöld hjá Víkingi í Kaupmannahöfn Fótbolti Keflavík fær bandarískan framherja Körfubolti „Vorum líkari okkur sjálfum að þessu sinni“ Fótbolti ÍBV búið að tryggja sér sæti í Bestu deildinni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gervigreindin spáir í fyrstu umferðina Sjáðu upphitunarþátt fyrir enska boltann í heild Xhaka gerður að fyrirliða tveimur vikum eftir að hann var keyptur Enska augnablikið: Englar og djöflar Leoni færist nær Liverpool Tony Adams vill að Arsenal skipti um fyrirliða Rooney sár út í Tom Brady: „Fannst hann vera mjög ósanngjarn“ Chelsea gefur fjölskyldu Jota hluta af HM-bónusunum Nýja stórstjarna Liverpool fékk ekki að hafa sjónvarp heima hjá sér Enska augnablikið: AGUERO!! Leik U21 liðs Man United hætt vegna meiðsla leikmanns Calvert-Lewin á leið til Leeds Willum lagði upp sigurmark Birmingham Jason Daði og félagar fá Rauðu djöflana í heimsókn Enska augnablikið: Hugsaði til van Persie eftir frægt mark í Eyjum Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Grealish valdi númerið sitt vegna Rooney og Gascoigne „Fáránleg staða sem er komin upp“ Stuðningsmenn Chelsea bjartsýnastir en mjög svartsýnir hjá Newcastle Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Vildi hvergi annarsstaðar spila Dýrasti leikmaður í sögu City lánaður til Everton Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Coote dæmdur í átta vikna bann fyrir ummælin um Klopp Enska augnablikið: Sá allra svalasti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Bale af golfvellinum og á skjáinn Sjá meira