Arsenal með fimm stiga forskot Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. desember 2007 19:00 Mathieu Flamini og Emmanuel Adebayor fagna fyrra marki Arsenal í dag. Nordic Photos / Getty Images
Arsenal er með fimm stiga forskot á Chelsea á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og á leik til góða í þokkabót eftir sigur á Aston Villa á útivelli í dag, 2-1. Craig Gardner kom Aston Villa yfir en þeir Mathieu Flamini og Emmanuel Adebayor skoruðu mörk Arsenal. Nigel Reo-Coker var ekki í byrjunarliði Aston Villa í dag og tók Craig Gardner stöðu hans. Þeir Emmanuel Adebayor og fyrirliðinn William Gallas voru komnir í byrjunarlið Arsenal á nýjan leik. Cesc Fabregast meiddist í leiknum við Sevilla í Meistaradeildinni í vikunni og var því ekki með Arsenal. Aston Villa hefur gengið sæmilega gegn stóru liðunum á heimavelli á tímabilinu. Liðið tapaði að vísu fyrir Liverpool og Manchester United en vann Chelsea. Nú var topplið Arsenal komið í heimsókn og Aston Villa náði forystu snemma í leiknum. Gardner var þar að verki með góðu skoti í vítateignum eftir fyrirgjöf frá vinstri. En Mathieu Flamini jafnaði metin áður en hálfleikurinn var liðinn með öðru góðu skoti, í þetta sinn eftir að þeir Eboye og Adebayor spiluðu sig í gegnum vörn Aston Villa. Arsenal náði svo að bæta við öðru marki áður en hálfleikurinn var liðinn. Þar var Adebayor að verki með glæsilegu skallamarki eftir fyrirgjöf Bakari Sagna. Topplið Arsenal sýndu glimrandi góða takta eftir að hafa lent marki undir á útivelli og sýndu og sönnuðu af hverju liðið er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Aston Villa reyndu þó að bíta frá sér í seinni hálfleik og var John Carew nærri því að jafna metin undir lok leiksins. En allt kom fyrir ekki og Arsenal tryggði stöðu sína enn fremur á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira