Redknapp bitur vegna framgöngu lögreglunnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. nóvember 2007 14:58 Harry Redknapp er knattspyrnustjóri Portsmouth. Nordic Photos / Getty Images
Harry Redknapp sagði í dag að hann hefði orðið fyrir miklum vonbrigðum með framgöngu lögreglunnar í Englandi sem handtók hann í gær í tengslum við rannsókn á spillingu í ensku knattspyrnunni. Lögreglan gerði rassíu á heimili hans klukkan sex í gærmorgun og voru blaðaljósmyndarar ekki langt undan. Hann segir hins vegar að rannsóknin hafi ekkert með sig að gera. Hann var einn fimm sem voru handteknir í gær og annar var Milan Mandaric, fyrrum stjórnarformaður Portsmouth þar sem Redknapp starfar sem knattspyrnustjóri. Redknapp sagði á blaðamannafundi í dag að hann skildi ekki af hverju hann væri viðriðinn rannsókn á máli sem snerist um greiðslur umboðsmanns til leikmanns. „Hvað fer fram á milli umboðsmanns og leikmanns hefur ekkert með mig að gera," sagði Redknapp. „Mér finnst eins og að ég hafi verið handtekinn bara vegna þess að ég er þekktur einstaklingur." Redknapp fundaði með leikmönnum sínum í dag. Hann gantaðist með að leikmenn hefðu ólmir viljað fá símanúmer þessa umboðsmanns því þeir hafi aldrei hitt umboðsmann sem væri viljugur til þess. Hann var ekki á heimili sínu þegar lögreglan réðst inn þar sem hann var staddur í Þýskalandi vegna leiks í Meistaradeild Evrópu. Hann sagði að konan sín hefði verið mjög svo óttaslegin og að þetta hafi tekið mikið á fjölskyldu hans. Meðal þeirra sem er talinn hafa verið handtekinn er Amdy Faye, leikmaður Charlton og landsliðs Senegal. Hann leikur nú með Rangers þar sem hann er á lánssamningi.
Mest lesið Kári Kristján spilar aldrei aftur fyrir ÍBV Handbolti Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enski boltinn Gervigreindin spáir í fyrstu umferðina Enski boltinn Ótrúlegt golfhögg í reiðiskasti slær í gegn á netinu Golf „Algjörlega niðurbrotinn eftir þetta tap“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþátt fyrir enska boltann í heild Enski boltinn Enska augnablikið: Eftirminnilegasta lýsing Íslandssögunnar Enski boltinn Nýr framherji Man. United treður með miklum tilþrifum í körfuna Enski boltinn Eiginkonan líkir þjálfara Slóvena við Gosa Körfubolti Danirnir hjá Norwich fögnuðu óförum Víkinga berir að ofan Fótbolti Fleiri fréttir Fjölskylda Jota á Anfield í kvöld „Maður er búinn að vera á nálum“ Spurningar um Isak tóku yfir fundinn Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enska augnablikið: Eftirminnilegasta lýsing Íslandssögunnar Nýr framherji Man. United treður með miklum tilþrifum í körfuna „Gefa áhorfendum innsýn í það sem sérfræðingarnir gera“ Dagskráin: Fyrsti leikur í enska boltanum Gervigreindin spáir í fyrstu umferðina Sjáðu upphitunarþátt fyrir enska boltann í heild Xhaka gerður að fyrirliða tveimur vikum eftir að hann var keyptur Enska augnablikið: Englar og djöflar Leoni færist nær Liverpool Tony Adams vill að Arsenal skipti um fyrirliða Rooney sár út í Tom Brady: „Fannst hann vera mjög ósanngjarn“ Chelsea gefur fjölskyldu Jota hluta af HM-bónusunum Nýja stórstjarna Liverpool fékk ekki að hafa sjónvarp heima hjá sér Enska augnablikið: AGUERO!! Leik U21 liðs Man United hætt vegna meiðsla leikmanns Calvert-Lewin á leið til Leeds Willum lagði upp sigurmark Birmingham Jason Daði og félagar fá Rauðu djöflana í heimsókn Enska augnablikið: Hugsaði til van Persie eftir frægt mark í Eyjum Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Grealish valdi númerið sitt vegna Rooney og Gascoigne „Fáránleg staða sem er komin upp“ Stuðningsmenn Chelsea bjartsýnastir en mjög svartsýnir hjá Newcastle Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Vildi hvergi annarsstaðar spila Sjá meira