Keðjureykjandi lögfræðingur í þungarokki 20. nóvember 2007 11:24 Slaven Bilic er sannarlega litríkur maður NordicPhotos/GettyImages
Hann spilar fjárhættuspil, hann keðjureykir, spilar þungarokk, hefur engar taugar og hikar ekki við að koma höggi á andstæðing sinn við hvert tækifæri. Þetta er Slaven Bilic, landsliðsþjálfari Króata í knattspyrnu. Slaven Bilic leiðir lið sitt inn á Wembley annað kvöld þar sem það mætir Englendingum í lokaleiknum í undankeppni EM. Króatar hafa þegar tryggt sér sæti á EM en Englendingar þurfa að ná hagstæðum úrslitum. Fyrrum liðsfélagi Bilic hjá West Ham, Alvin Martin, segir að ef hann þekki Bilic rétt - hafi Steve McClaren og félagar hjá enska landsliðinu ekki hugmynd um hverju þeir megi eiga von á í leiknum. Pókerfés "Hann var rosalegur í fjárhættuspilunum á sínum tíma," sagði Martin um Bilic þegar þeir spiluðu saman fyrir rúmum áratug. "Það má eiginlega segja að hann hafi verið á heimavelli í pókernum því hann hafði einstaka hæfileika til að blekkja andstæðinga sína og það var aldrei hægt að lesa út hvað hann hafði á hendinni. Hann var aldrei hræddur við að taka stórar áhættur og það er það sem Steve McClaren þarf að hafa áhyggjur af í næsta leik." Metal-lögfræðingur Bilic reykir eins og skorsteinn og spilar á gítar í þungarokkshljómsveit. Hann er menntaður lögfræðingur og er búinn að koma Króötum á EM 2008 - ekki slæmt af 39 ára gömlum manni sem var að byrja að þjálfa og var leikmaður fyrir aðeins sex árum síðan. Pressa er eitthvað sem hefur lítil áhrif á Bilic og þegar hann var spurður út í pressuna á Steve McClaren eftir að Króatar lögðu Englendinga 2-0 á heimavelli í fyrra sagði hann; "Ef þú getur ekki höndlað pressu - ættirðu að finna þér eitthvað annað að gera." Lúmskur refur Fyrrum félagi hans Martin segir að sumir hlutir í framkomu Bilic hafi ekki beinlínis verið til fyrirmyndar, en þannig sé hann nú bara - eins og þegar hann fiskaði Laurent Blanc hjá Frökkum af velli í undanúrslitaleik Frakka og Króata á HM árið 1998. Sumir ensku leikmannanna segja líka að þegar hann hafi rétt þeim höndina og boðist til að reisa þá upp eftir að þeir duttu- hafi hann togað af öllu afli í einn af fingrunum á þeim. "Sumt af því sem hann sýndi á vellinum var kannski ekki til fyrirmyndar og þetta atriði með Laurent Blanc kom mér ekki sérlega á óvart, en það er bara til marks um það hvað hann var útsjónarsamur og lúmskur. Það er þess vegna sem hann er svona góður þjálfari í dag," sagði Martin í samtali við Daily Mail.
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira