Enski boltinn

Eriksson lærir á harmonikku

Elvar Geir Magnússon skrifar
Sven Göran Eriksson.
Sven Göran Eriksson.

Sven Göran Eriksson er sífellt í fréttunum fyrir furðulegar sakir. Nú hefur komið í ljóst að hann er að læra á harmonikku og er það Tord Grip, fyrrum aðstoðarmaður hans hjá enska landsliðinu, sem sér um kennsluna.

Samkvæmt The Sun hefur Grip spilað á harmonikku í mörg ár en spilar þó aðeins á hana í einkasamkvæmum og matarboðum. Grip spilaði eitt sinn fyrir Eriksson og vildi sá sænski ólmur fá að læra á harmonikku.

Eriksson hefur einnig verið í fréttunum fyrir óvenjulegar þjálfunaraðferðir sínar hjá Manchester City. Leikmenn liðsins hafa fengið að kynnast glímu, jóga og ísböðum síðustu vikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×