Lee Bowyer er leikmaður 13. umferðarinnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. nóvember 2007 14:54 Lee Bowyer hefur staðið sig vel á leiktíðinni. Nordic Photos / Getty Images
Lee Bowyer átti stórleik fyrir West Ham þegar liðið rústaði Derby, 5-0, þrátt fyrir að vera kvalinn vegna kviðslits. Bowyer gekkst undir aðgerð í gær vegna meiðslanna og verður hann af þeim sökum frá næstu vikurnar. Hann á skrautlegan feril að baki en er líklega þekktastur fyrir afrek sín með Leeds þegar félagið náði sínum besta árangri um aldamótin. Árið 2003 gekk hann til liðs við West Ham en staldraði aðeins við í sex mánuði þar sem liðið féll úr úrvalsdeildinni um vorið. Í kjölfarið samdi hann við Newcastle þar sem hann var í þrjú tímabil. Þar þótti hann sjaldan standa undir þeim væntingum sem gerðar voru til hans og minnistæðast er væntanlega slagsmálin sem hann átti við Kieron Dyer í leik við Aston Villa í apríl árið 2005. Bowyer var í kjölfarið sektaður um sex vikna laun og dæmdur í þriggja leikja bann. Hann hefur margsinnis komist í kast við lögin sem frægt er en er nú loksins búinn að koma sér á rétta braut. Hann hefur átt góðu gengi að fagna á tímabilinu hjá West Ham sem hann gekk til liðs við öðru sinni í júní árið 2006. Hann er nú kominn aftur undir stjórn þjálfarans sem mótaði hann fyrstu árin í boltanum. Hér er átt við Alan Curbishley sem var áður knattspyrnustjóri Charlton, þar sem Bowyer hóf feril sinn áður en hann gekk til liðs við Leeds árið 1996. „Það eina sem ég vil gera er að spila fótbolta með West Ham og vonandi held ég áfram á þessari braut," sagði Bowyer sem er nú þrítugur. Frammistaða hans hefur vakið það mikla athygli að fjölmiðlamenn í Englandi eru nú farnir að orða hann við landsliðssæti. Sjálfur efast um að kallið eigi eftir að koma frá Steve McClaren landsliðsþjálfara. „Ég held að ég verði aldrei aftur valinn í landsliðið," sagði hann en hann hefur einu sinni spilað landsleik, árið 2002. „Ég tel það því mikilvægast fyrir mig að standa mig vel fyrir West Ham." Nafn: Lee David Bowyer Fæddur: 3. janúar 1977 í Newham í Lundúnum. Félög: Charlton, Leeds, West Ham og Newcastle. Númer: 29
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira