Enski boltinn

Berbatov ánægður með Ramos

Elvar Geir Magnússon skrifar

Búlgarski sóknarmaðurinn Dimitar Berbatov er hæstánægður með nýja knattspyrnustjórann hjá Tottenham, Spánverjann Juande Ramos. Berbatov lenti upp á kant við Martin Jol en eftirmaður hans er í meiri metum hjá honum.

„Mín fyrstu kynni af Ramos eru þau að hann sé ótrúlegur persónuleiki. Hann ræðir við alla í liðinu persónulega. Hann er maður sem gerir allt til að hjálpa liðinu. Hann er fullkominn í þetta starf," sagði Berbatov.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×