Enski boltinn

Evrópa hjá Chelsea en deildin hjá Liverpool

Elvar Geir Magnússon skrifar
Peter Kenyon.
Peter Kenyon.

Peter Kenyon segir að Chelsea geti ekki talist risi í Evrópufótboltanum fyrr en félagið vinnur Meistaradeild Evrópu. „Þau lið sem eru á stóra sviðinu eiga það sameiginlegt að hafa orðið Evrópumeistarar," sagði Kenyon, stjórnarmaður hjá Chelsea.

„Þrátt fyrir að hafa verið sigursæl í heimalandinu þá komast lið ekki í næsta flokk fyrr en þau hafa náð að vinna Meistaradeildina," sagði Kenyon í viðtali við sjónvarpsstöð Chelsea. Í sama viðtali hrósaði hann einnig knattspyrnustjóranum Avram Grant í hástert.

Aðalmarkmið Chelsea á tímabilinu virðist því vera að vinna Meistaradeildina. Hjá Liverpool er markmið númer eitt hinsvegar enska úrvalsdeildin.

„Stóra markmiðið er að vinna úrvalsdeildina eftir langa bið hjá félaginu. Það verður virkilega erfitt en mótið er bara að byrja, það er nóg eftir," sagði Pepe Reina, markvörður Liverpool.

„Liverpool er sigursælt félag og við viljum halda í hefðina. Liverpool er eitt besta lið Englands og við þurfum að fara að sýna það á vellinum," sagði Reina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×