Íslenski boltinn

Lúkas: Ánægður með framfarirnar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lúkas Kostic (til hægri) með Magnúsi Gylfasyni aðstoðarmanni sínum á Grindavíkurvelli í dag.
Lúkas Kostic (til hægri) með Magnúsi Gylfasyni aðstoðarmanni sínum á Grindavíkurvelli í dag. Mynd/E. Stefán
Lúkas Kostic, þjálfari U-21 landsliðs Íslands, var ánægður með framfarir á leik íslenska liðsins en óánægður með úrslitin gegn Austurríki í dag.

Liðin gerðu 1-1 jafntefli í Grindavík í dag í undankeppni EM U-21 landsliða sem fer fram árið 2009.

„Ég vildi að strákarnir spiluðu betur en í síðasta leik og þeir gerðu það," sagði Lúkas. „En það virtist eins og það væri erfitt fyrir þá að átta sig á leiknum, sérstaklega í síðari hálfleik þegar þeir voru með vindinn í bakið og voru manni fleiri. Við sóttum þó allan tímann þó þeir hafi fengið nokkur færi. En við áttum að vinna."

Ísland er nú með þrjú stig í riðlinum eftir þrjú jafntefli í röð. „Það er greinilega erfitt að brjóta ísinn. En frá fyrsta leiknum gegn Kýpur er hver einasti leikur búinn að vera betri. Ég vona að þetta komi næst. Það eru miklir hæfileikar í þessu liði og vonandi halda þeir áfram að blómstra."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×