Enski boltinn

Cole ekki með gegn Rússum

Elvar Geir Magnússon skrifar
Ashley Cole er kominn á meiðslalistann og verður ekki með enska landsliðinu næsta miðvikudag.
Ashley Cole er kominn á meiðslalistann og verður ekki með enska landsliðinu næsta miðvikudag. NordicPhotos/Getty Images

Ashley Cole, vinstri bakvörður Chelsea og enska landsliðsins, verður ekki með Englandi sem leikur gegn Rússlandi á miðvikudag. Cole var borinn af velli vegna ökklameiðsla í 3-0 sigurleik Englands gegn Eistlandi í gær.

Ekki er enn vitað hve lengi Cole verður frá vegna þessara meiðsla. Luke Young, varnarmaður Middlesbrough, hefur verið kallaður inn í enska landsliðshópinn í stað Cole.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×