Enski boltinn

McClaren: Rooney er ekki í heimsklassa

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Wayne Rooney og Steven Gerrard gantast á æfingu með enska landsliðinu í dag.
Wayne Rooney og Steven Gerrard gantast á æfingu með enska landsliðinu í dag. Nordic Photos / Getty Images

Steve McClaren segir að Wayne Rooney þurfi að bæta sig til að geta talist leikmaður í heimsklassa.

Rooney verður í enska landsliðinu sem mætir því eistneska á morgun en það verður í fyrsta sinn í sjö mánuði sem hann spilar með liðinu þar sem hann hefur átt við meiðsli að stríða.

Hann hefur ekki skorað í þýðingarmiklum leik með enska landsliðinu í þrjú ár og viðurkennir að hann hafi ekki staðið sig vel undanfarin tvö ár í búningi enska landsliðsins.

„Það er gott að sjá að Wayne lýsir yfir vonbrigðum sínum með frammistöðu sína og mætti sjást meira af því. Wayne hefur alla burði til að gerast leikmaður í heimsklassa. Hann á þó langa leið fyrir höndum og á mikið ólært."

Rooney hefur þó átt marga magnaða leiki með Manchester United á undanförnum árum en hefur ekki náð sér á strik með landsliðinu.

Því má þó ekki gleyma að Rooney er 21 árs gamall. Hann verður 22 ára eftir tæpar tvær vikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×