Arsenal hitti Kroenke í gær Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. október 2007 15:15 Stan Kronke á mörg íþróttafélög í Bandaríkjunum. Nordic Photos / Getty Images
Stjórn enska úrvalsdeildarliðsins Arsenal staðfesti að hafa hitt Bandaríkjamanninn Stan Kroenke í gær. Kroenke hefur lengi verið orðaður við yfirtökutilboð á Arsenal og á nú þegar 12,2 prósent hlutabréfa í félaginu. Rússinn Alisher Usmanov hefur einnig mikinn hug á að festa kaup á Arsenal og hefur nú þegar eignast 23 prósent hlutabréfa. Kroenke hefur nú hitt stjórn Arsenal nokkrum sinnum að máli í þeirri von að koma á góðu samstarfi. „Fundurinn er liður í því að halda góðum samskiptum við stóra hluthafa í Arsenal,“ sagði í tilkynningu frá stjórn félagsins. Kronke hefur víða látið til sín taka í Bandaríkjunum og á fjöldamörg íþróttafélög. Fyrirtæki hans, Kroenke Sports Enterprise, á ruðningsliðin St. Louis Rams og Colorado Crush, NBA-liðið Denver Nuggets, hokkíliðið Colorado Avalanche, lacrosse-liðið Colorado Mammoth og fótboltaliðið Colorado Rapids. Hann á einnig Pepsi Center-íþróttaleikvanginn þar sem Nuggets, Avalanche, Crush og Mammoth leika heimaleiki sína. Hann á líka Altitude Sports and Entertainment-íþróttarásina sem sýnir alla heimaleiki liða hans í Colorado í beinni útsendingu. Hann er á lista Forbes yfir fjögur hundruð ríkustu menn heims og er talinn vera um 2,1 milljarða dollara virði. Kona hans, Anne Walton, er erfingi Wal-Mart verslunarkeðjunnar.
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Fleiri fréttir Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Sjá meira