Owen og Terry ætla að ná landsleikjunum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. október 2007 11:14 John Terry og Michael Owen virðast góðir félagar. Nordic Photos / Getty Images
Michael Owen og John Terry eru ákveðnir í því að ná landsleikjum Englands í mánuðinum þrátt fyrir meiðsli sín. Meiðslavandræði enska landsliðsins virðast engan endi ætla að taka en þeir Owen og Terry ætla að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að taka þátt í leikjunum mikilvægu. England mætir Eistlandi og Rússlandi í undankeppni EM 2008 í mánuðinum og þarf helst á sex stigum að halda til að missa ekki af úrslitakeppninni í Austurríki og Sviss á næsta ári. Terry gekkst undir aðgerð vegna kinnbeinbrots í gær en góðu fréttirnar eru þær að ekki þarf að græða í stálplötu í beinið vegna brotsins og gæti það flýtt fyrir bata hans. Terry er tilbúinn til að spila með grímu í næstu leikjum Chelsea og enska landsliðsins. Hann verður þó tæpast til fyrir leik Chelsea gegn Valencia í Meistaradeild Evrópu í vikunni. Owen gekkst undir aðgerð á nára í Þýskalandi á föstudag og hann vill líka spila. Hann skoraði þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum landsliðsins. Steve McClaren, landsliðsþjálfari Englands, gæti þó átt í erfiðleikum með að velja þá í liðið í staðinn fyrir menn sem eru heilir. „Það er ekki hægt að útiloka neinn á þessum tímapunkti. Það eru enn tvær vikur í leikinn gegn Eistum og ég veit að bæði John og Michael vilja ólmir spila fyrir enska landsliðið. Allir vita hvernig John Terry er. Hann væri tilbúinn að gefa líf sitt fyrir England. Það er einmitt það sem við þurfum nú.“
Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Qarabag - Vestri | Fyrsti Evrópuleikur Ísfirðinga Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Handbolti Fleiri fréttir Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Sjá meira