Ferguson hundsvekktur með tapið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. september 2007 23:25 Ferguson gengur svekktur af velli í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Sir Alex Ferguson var alls ekki ánægður með leik sinna manna á Old Trafford í kvöld. Manchester United tapaði fyrir Coventry, 2-0, í ensku deildabikarkeppninni. Þrátt fyrir að hafa teflt fram óreyndu liði voru samt sem áður sex landsliðsmenn í liðinu, þeirra á meðal portúgalska tvíeykið Nani og Anderson sem kostuðu United 34 milljónir punda í sumar. „Ég er algerlega orðlaus yfir þessari frammistöðu í kvöld,“ sagði Ferguson. „Ég átti alls ekki von á þessu. Ég er ekki mikið fyrir að gefa ástæður eða spá í kringumstæður. Þetta var einfaldlega slæm frammistaða.“ „Við höfum verið duglegir að hrósa þessum strákum. Þess vegna skil ég ekki hvað fór úrskeðis í kvöld.“ Nani og Anderson þóttu báðir slakir í leiknum sem og Chris Eagles og Dong Fangzhou en sá síðastnefndi komst næst því að skora fyrir United í leiknum. „Maður vill gefa þessum strákum tækifærið og í kvöld gátum við gert einmitt það. Sá fjöldi stuðningsmanna Coventry sem komu hingað í kvöld gerði það að verkum að það var ekta bikarstemmning á leiknum og kannski var það nokkrum leikmönnum okkar um megn. Í fyrri hálfleik vorum við eftir á í hvern einasta bolta.“ Ian Dowie, stjóri Coventry, var vitaskuld hæstánægður með sigurinn. „Þetta kvöld verður lengi í minnum haft í Coventry.“ Til samanburðar má nefna að Arsene Wenger stillti upp ungu og óreyndu liði sem mætti Newcastle á heimavelli í sömu keppni í gær. Arsenal vann leikinn, 2-0.
Mest lesið Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Heilbrigðisráðherra lætur óvin Íslands heyra það Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti Óvinur Íslands: „Aldrei stríða heilu landi“ Handbolti Danir komnir í undanúrslit en Þjóðverjar þurfa stig gegn Frökkum Handbolti Stærð sigurs Íslands gegn Svíum veki upp spurningar Handbolti Þetta er ástæða þess að Ísland er í efsta sæti í milliriðlinum Handbolti Dramatísk úrslit og vonir beggja liða nánast úr sögunni Handbolti Ótrúleg saga Viggós rifjuð upp í erlendum miðlum Handbolti Dregur til baka ummæli sín um Gísla Þorgeir Handbolti Fleiri fréttir Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga Sjá meira