Enski boltinn

Forseti AC Milan vill Anelka

Elvar Geir Magnússon skrifar
Anelka er franskur landsliðsmaður.
Anelka er franskur landsliðsmaður.

Fjölmiðlar á Ítalíu segja að Silvio Berlusoni, forseti ítalska liðsins AC Milan, vilji fá franska sóknarmanninn Nicolas Anelka til félagsins. Anelka leikur með Bolton í ensku úrvalsdeildinni.

Berlusconi vill bæta sóknarmanni í hópinn en hann er ekki sáttur við formið á þeim Alberto Gilardino og Ronaldo.

Ekki er talið að Anelka staldri mikið lengur við hjá Bolton en hann hefur ítrekað lýst því yfir að hann vilji fara til stærra félags.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×