Mourinho: hvað gerðist? Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. september 2007 11:48 Mourinho og Terry munu hafa rifist heiftarlega í vikunni. Nordic Photos / Getty Images
Talið er að ósætti John Terry og Jose Mourinho hafi orðið til þess að Mourinho fór frá Chelsea. The Sun greinir frá þessu í morgun. Mourinho mun hafa verið óánægður með frammistöðu Terry í síðustu leikjum og spurt læknalið félagsins hvort þeir hefðu skýringu á því. Terry brást ókvæða við þegar hann heyrði af þessu og rifust þeir heiftarlega um málið, bæði fyrir og eftir jafnteflisleikinn við Rosenborg í Meistaradeildinni í fyrrakvöld. "Fregnir af rifrildi þeirra bárust til forráðamanna félagsins sem höfðu áhyggjur af því að Mourinho væri að glata trausti leikmanna," hefur Sun eftir ónefndum heimildamanna innan raða Chelsea. Því hefur líka verið haldið fram að koma Michael Ballack og Andryi Shevchenko til félagsins hafi verið í óþökk Mourinho. Það hafi verið upphafið að deilu Mourinho við Roman Abramovich, eiganda Chelsea. Avram Grant, nýráðinn eftirmaður Mourinho, kom til félagsins í sumar og var ráðinn yfirmaður knattspyrnumála. Mourinho mun hafa sett sig á móti því og skipað honum að halda sig frá liði sínu. Grant og Abramovich munu vera miklir vinir. Abramovich hafi hreinlega beðið eftir tækifærinu að koma Grant að. The Sun segir að Abramovich hafi krafist svara við þriggja spurnina eftir jafnteflið við Rosenborg. 1. Af hverju spilar liðið undir stjórn Mourinho svo leiðinlegan fótbolta? 2. Af hverju tekst liðinu ekki að skora mörk? 3. Af hverju komu aðeins 24 þúsund áhorfendur á leikinn? Abramovich hefur skýrar áætlanir fyrir félagið sitt. Á tíu árum á liðið að verða Evrópumeistari tvisvar. Mourinho hefur tvívegis stýrt Chelsea í undanúrslit Meistaradeildarinnar en ekki komist í úrslitin. Svo virðist sem að Abramovich hafi ekki treyst Mourinho til að stýra liðinu til sigurs í Meistaradeildinni í ár. Sjá einnig:Jose Mourinho hættur hjá ChelseaGrant tekur við ChelseaFerill Mourinho í máli og myndum„Mourinho fær 3,2 milljarða“
Mest lesið Sagði frá því hvernig hann kom upp um hneyksli Infantino Fótbolti Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm Íslenski boltinn „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Enski boltinn Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum Enski boltinn Enn engin skýring á dauðaslysi hjólreiðakappans Sport The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Enski boltinn Táningur sló 470 metra högg á DP World Tour Golf Selfoss og Jón Daði semja um starfslok Íslenski boltinn Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu Körfubolti Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Körfubolti Fleiri fréttir West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Ætla ekki að bjóða í Enzo Fernández í dag Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Sjá meira