Rússi kaupir hlut Dein í Arsenal 31. ágúst 2007 09:57 David Dein græddi vel þegar hann seldi hlut sinn í Arsenal. Nordic Photos/Getty
David Dein, fyrrverandi varaformaður Arsenal, hefur selt 14,5% hlut sinn í félaginu til rússneska auðkýfingsins Alisher Usmanov fyrir 75 milljónir punda eða 9,75 milljarða íslenskra króna. Lítil ánægja ríkir meðal annarra hlutahafa Arsenal með ákvörðun Deins. Usmanov hefur auðgast mjög á stáliðnaði og eru eignir hans metnar á 520 milljarða íslenskra króna. Það ríkir þó lítil ánægja með þeirra hlutahafa sem fyrir eru hjá Arsenal með aðkomu Rússans. "Við þurfum ekki fleiri fjárfesta. Félagið er nógu sterkt til að berjast á toppnum og fjárhagurinn er afar góður. Það munu allir sjá það þegar við birtum ársreikning okkar í september," sagði Kevin Edelman, framkvæmdastjóri hjá félaginu. Hluthafarnir ættu þó að vara sig því svo gæti farið að Usmanov gangi til liðs við bandaríska auðkýfinginn Stan Kroenke sem er góðvinur Deins. Kroenke á rúm 12% í félaginu og saman eru þeir nálægt þeirri tölu sem gefur þeim færi á yfirtökuskyldu. Þá vantar aðeins rétt rúm þrjú prósent til að ná því sem yrði væntanlega martröð fyrir núverandi hlutahafahóp sem heldur um stjórnartaumana hjá félaginu. Ljóst er þó að Arsene Wenger myndi fagna aðkomu Deins að félaginu á ný en þeir tveir eru nánir vinir. Dein hætti hjá Arsenal í apríl vegna deilna um framtíð félagsins og hefur síðan leitað logandi ljósi að moldríkum mönnum til að fjárfesta í Arsenal.
Mest lesið Segir fjórðung í bók Óla ósannan Íslenski boltinn „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Fótbolti Åge Hareide látinn Fótbolti „Er því miður kominn í jólafrí“ Handbolti Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Fótbolti Útilokar ekki breytingar: „Er klárlega að líta í kringum mig“ Körfubolti Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Fótbolti Setti heimsmet fyrir mömmu sína Sport Dagskráin í dag: Píla og Álftanes með nýjan þjálfara Sport Bardagakappi drukknaði á Amazon-svæðinu Sport Fleiri fréttir „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Moyes ældi alla leiðina til Eyja Bróðirinn sendir Amorim skilaboð: „Frelsið Kobbie Mainoo“ „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Skemmtilegt fyrir fólkið heima og United verðskuldaði sigur Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Vildi ekki skýra ummælin um verstu 48 klukkutímana frekar Maresca hafi tekið blaðsíðu úr bók Salah og gert sér óleik Guardiola gagnrýndi Foden þrátt fyrir markið „Finnst þér ekki eins og hann sé þjakaður af pressu yfir því hvað hann sé lélegur?“ Fyrirliði Newcastle eftir tapið fyrir Sunderland: „Þetta er svo vandræðalegt“ Sjá meira