Sanchez æfur út í yfirmann dómaramála á Englandi Aron Örn Þórarinsson skrifar 27. ágúst 2007 17:27 Lawrie Sanchez er ekki hrifinn af dómurunum á Englandi. NordicPhotos/GettyImages
Lawrie Sanchez, knattspyrnustjóri Fulham, skaut fast að Keith Hackett, yfirmanni dómaramála í ensku úrvalsdeildinni í gær. Sanchez segir að Hackett sé of upptekinn af því að gera Rafa Benítez ánægðan og það sé á kostnað „minni liða." Sanchez er æfur yfir því að liðið hans hafi ekki fengið dæmda vítaspyrnu gegn Aston Villa um helgina þegar boltinn fór augljóslega í hönd Craig Gardner inni í vítateig Villa, sjö dögum eftir að mark var dæmt af David Healy, framherja Fulham, þar sem boltinn fór augljóslega inn fyrir línuna. Sanchez er reiður vegna þess að hann bað Hackett um að útskýra fyrir sér af hverju markið var dæmt af. Hackett gat ekki gert það en fann samt tíma til að gera vel við Benítez vegna vítaspyrnudómsins umdeilda í leik Chelsea og Liverpool. Eftir að dómarinn dæmdi ekki vítaspyrnu gegn Villa um helgina var Sanchez nóg boðið. „Ég sagði við dómarann að hann hefði gert stór mistök og þau myndu sjást í sjónvarpinu, þið getið ekki haldið áfram að dæma allt vitlaust. En hann hundsaði mig," sagði Sanchez. „Ég ætla að tala við Hackett um þetta og spyrja hann af hverju vítaspyrnan var ekki dæmd. Í þetta sinn vona ég að hann svari símtali mínu. Hann sagðist ætla að tala við mig eftir að markið var dæmt af Healy í síðustu viku, hann talaði við Rafa en ekki mig. Dómararnir hafa tekið margar rangar ákvarðanir það sem af er þessu tímabili. Það þarf að gera eitthvað við þessu. Hackett sagðist ætla að skoða þetta og hringja svo í mig, en það gerði hann ekki. Svo eyðir hann öllum þessum tíma í að útskýra hlutina fyrir Rafa. Kannski eru litlu liðin ekki jafn mikilvæg."
Mest lesið Íslenskur sigur á morgun gulltryggir sæti í undanúrslitum Handbolti Sviss - Ísland 38-38 | Strákarnir okkar stálu stigi eftir slakan leik Handbolti Króatar Dags í góðri stöðu en Ísland í þröngri stöðu Handbolti Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti „Mjög svekkt og sár“ út í Skíðasamband Íslands Sport Dagur hengdi hrakspá handboltasérfræðings upp á króatíska hótelinu Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti Svona er staðan: Ekkert svigrúm hjá strákunum okkar Handbolti Skýrsla Henrys: Andlegt gjaldþrot enn og aftur Handbolti Svona er staðan: Strákarnir okkar þurfa að treysta á sænskt eða króatískt tap Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira