Enski boltinn

Viðræður um Yakubu standa yfir

Fer Yakubu til Everton?
Fer Yakubu til Everton?

Viðræður standa enn yfir milli Everton og Middlesbrough um sóknarmanninn Yakubu Aiyegbeni. Fréttir höfðu borist um að Everton væri búið að gefast upp á því að krækja í Yakubu en þær eru víst úr lausu lofti gripnar.

Middlesbrough setti tólf milljón punda verðmiða á þennan nígeríska landsliðsmann og er útlit fyrir að endar muni ná saman í lok vikunnar.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×