Enski boltinn

Ívar er ekki til sölu

Ívar er á óskalista Everton.
Ívar er á óskalista Everton.

Reading ætlar ekki að selja neinn af byrjunarliðsmönnum sínum áður en félagaskiptaglugganum lokar. Nokkur úrvalsdeildarlið hafa sýnt leikmönnum liðsins áhuga en þar á meðal er Everton sem vill fá til sín íslenska landsliðsmanninn Ívar Ingimarsson.

Þá er Nickey Shorey á óskalista West Ham og Newcastle og talið að Portsmouth vilji fá Leroy Lita. Shorey og Lita hafa báðir neitað að skrifa undir nýja samninga við Reading.

„Við viljum halda öllum þessum leikmönnum. Félagaskiptaglugganum verður lokað eftir tvær vikur en við ætlum að halda okkar bestu leikmönnum," sagði Nick Hammond, stjórnarmaður hjá Reading.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×