Enski boltinn

Mourinho segir enga leikara vera í Chelsea

Samúel Karl Ólason skrifar
„Rob Styles gerði rétt með að dæma vítaspyrnu,“ sagði Mourinho.
„Rob Styles gerði rétt með að dæma vítaspyrnu,“ sagði Mourinho. NordicPhotos/GettyImages

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur byrjað enn eitt orðaskakið við kollega sinn hjá Liverpool, Rafa Benitez. Núna heldur hann því fastlega fram að enginn í liði hans sé með leikaraskap.

Mourinho telur að Rob Styles dómari hafi haft rétt fyrir sér þegar hann dæmdi vítaspyrnu á Steve Finnan, varnarmann Liverpool, í leik liðanna á Anfield núna um helgina. Styles hefur verið gagnrýndur harkalega fyrir dóminn og hefur hann meðal annars viðurkennt að dómurinn var rangur.

En Mourinho var fljótur að koma sínum manni til varnar og sagði að hann hefði ekki gert neitt rangt.

,,Malouda er felldur aftan frá inni í teig. Ég held að það sé víti," sagði Mourinho. „Haldið þið að lið mitt umkringi dómarann? Við erum ekki með neina leikara, enga ofbeldisfulla menn, við erum ekki með neinar ljótar tæklingar, þetta er heiðarlegt lið," sagði Mourinho.

En Rafa Benitez svaraði reiðilega eftir leikinn með því að segja: „Ef það er satt, er ég Rauðhetta. Það er hægt að skoða aftur í tímann og sjá hversu oft þeir segja og gera hlutina sem þeir segjast ekki hafa gert."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×