Enski boltinn

Maður 3. umferðar: Micah Richards

Micah Richards stóð eins og klettur í vörn City um helgina.
Micah Richards stóð eins og klettur í vörn City um helgina.

Leikmaður helgarinnar er Micah Richards. Það er of langt mál að telja upp öll skiptin sem sóknaraðgerðir Manchester United strönduðu á Richards um helgina. Hann var sem klettur í vörninni ásamt reynsluboltanum Richard Dunne og gaf Tevez og félögum engin grið.

Það má segja að mesta afrek Sven Goran Erikson á þessu leiktímabili sé ekki endilega að púsla saman liði sem samanstendur af útlendingum sem enga reynslu hafa af enskum fótbolta.

Eða að hafa á aðeins tveim vikum náð að snúa ensku pressunni eins og hún leggur sig á sitt band eftir að hafa verið með hana blóðþyrsta á hælunum í rúm 5 ár.

Eða að hafa gert City lið sem ekki tókst að skora mark á heimavelli eftir jól á síðasta tímabili í léttleikandi sóknarlið.

Nei. Mesta afrekið er líklega það að hafa komið auga á að Micah Richards er ekki bara góður hægri bakvörður. Hann er heimsklassa miðvörður.

Það var öllum áhugamönnum um enska knattspyrnu ljóst á síðasta tímabili hversu mikið efni Micah Richards er. En engum datt í hug að hann myndi stimpla sig jafn hratt og öruglega inn sem einn af bestu varnarmönnum landsins eins og raun bar vitni.

Og engum datt í hug að hann myndi gera það í hinni erfiðu miðvarðarstöðu. Því þótt Richards hafi allt til brunns að bera. Líkamlegan styrk, hraða, og öryggi á boltanum gerði sér enginn grein fyrir því að þarna væri á ferðinni jafn snjall leikmaður og raun ber vitni.

Það eru margir ungir leikmenn sem geta leyst bakvarðastöðuna af öryggi í ensku úrvalsdeildinni. En þeir eru vandfundnir 19 ára piltarnir sem geta leikið hina krefajdi miðvaraðastöðu af jafn miklu öryggi og Richards gerði á móti United um helgina

Sven Goran Erikson, sem ekki er neitt unglamb í boltanum og hefur þjálfað nokkra af bestu leikmönnum sögunnar, segir þetta um leikmann 3 umferðar: "Ég hef aldrei áður unnið með varnarmanni sem er svona sterkur og fljótur. Hann vinnur allar tæklingar og getur barist. Ef hann gerir mistök nær hann alltaf að bjarga því með þessum ótrúlega hraða sem hann hefur yfir að ráða."

Ég er

Nafn: Micah Richards

Aldur: 19 ára

Félög: Manchester City

Staða: Miðvörður

Úrvalsdeildarleikir/mörk: 44/1

Landsleikir/mörk: 4/0

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×