Enski boltinn

Bellamy kominn upp á kant við Curbishley

Það tók Craig Bellamy ekki langan tíma að stofna til fyrsta rifrildisins við Alan Curbishley, knattspyrnustjóra West Ham.
Það tók Craig Bellamy ekki langan tíma að stofna til fyrsta rifrildisins við Alan Curbishley, knattspyrnustjóra West Ham. Nordic Photos/Getty

Það tók vandræðagemlinginn Craig Bellamy aðeins mánuð að komast upp á kant við Alan Curbishley, knattspyrnustjóra West Ham. Bellamy reifst heiftarlega við Curbishley eftir tapleik liðsins gegn Manchester City um síðustu helgi og gæti þess vegna hafa spilað sinn síðasta leik fyrir félagið.

Bellamy var ekki ánægður eftir tapið gegn Manchester City og lét Curbishley fá það óþvegið í búningsklefanum eftir leikinn eftir því sem enska götublaðið The Sun segir. Blaðið hefur eftir ónefndum heimildamanni að þeir hafi hnakkrifist fyrir framan alla leikmenn liðsins sem hafi krossbrugðið. Bellamy ku hafa verið afar ósáttur við spilamennsku West Ham-liðsins og gagnrýndi leikaðferð Curbishley harkalega.

Bellamy, sem kom frá Liverpool fyrir 7,5 milljónir punda í sumar, er vanur því að feta ótroðnar slóðir í samskiptum sínum við liðsfélaga sína og knattspyrnustjóra. Frægt er þegar hann lamdi John Arne Riise, þáverandi félaga sinn hjá Liverpool, með golfkylfu fótinn í febrúar og margir muna eftir því þegar hann úthúðaði stjóranum Graeme Souness á meðan þeir voru hjá Newcastle. Það endaði með því að Bellamy var seldur frá félaginu alls ekki óvíst að það sama verði upp á teningnum nú.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×