Enski boltinn

JOLasveinn á botninum eftir 13 milljarða innkaup

Það er ekki undarlegt að Martin Jol sé hugsi þessa daganna.
Það er ekki undarlegt að Martin Jol sé hugsi þessa daganna.

Martin Jol hefur keypt leikmenn fyrir túmlega 100 milljón pund, eða um 13 milljarða króna. Samt sem áður situr lið hans, Tottenham, í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 0 stig.

Búist var við stórum hlutum af liðinu í vetur eftir að Jol splæsti í leikmenn fyrir 40 milljónir punda en allt kemur fyrir ekki.

Nú er bara spurning hversu mikla þolinmæði David Levy stjórnarformaður hefur fyrir Hollendingnum sem kom til Tottenham í nóvember 2004.

10 dýrustu leikmenn Martin Jol

(Upphæðir eru í enskum pundum)

Darren Bent 16.5

Dimitar Berbatov 10.9

Gareth Bale 10

Didier Zokora 8.2

Younes Kaboul 8.2

Jermaine Jenas 7

Pascal Chimbonda 5.5

Kevin Boateng 5.4

Andy Reid 4

Michael Dawson 4




Fleiri fréttir

Sjá meira


×