Enski boltinn

Benitez róar reiðan Crouch

Rafael Benitez segir að hann hafi þurft að tala við Peter Crouch vegna óánægju leikmannsins yfir því að hafa ekki verið valinn í hóp liðsisn sem mætti Aston Villa.

Benitez, sem löngum hefur verið þekktur fyrir að stilla sjaldan upp sama liði tvisvar segist eiga úr "of mörgum leikmönnum" að velja.

Það leiddi til dæmis til þess að Yossi Benyoun, Javier Mascherano og Crouch fóru ekki með liðinu til Birmingham þar sem Liverpool mætti Aston Villa.

"Í gær ræddi ég við leikmann um þetta mál. Hann sýndi stöðunni skilning en ég sagði honum að hann, eins og aðrir leikmenn, yrðu að vera tilbúnir. Því við komum til með að þurfa á þeim að halda."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×