Enski boltinn

Scmeichel ekki í áætlunum Sven Goran

Sven Goran vill fá ítalskan markmann til City.
Sven Goran vill fá ítalskan markmann til City.

Sven Goran Erikson, knattspyrnustjóri Manchester City, segir að liðið verði að kaupa markmann til þess að leysa hinn meidda Andreas Isakson af hólmi. Isakson er fingurbrotinn og Kasper Schmeichel, sonur Peter Schmeichel sem stóð í marki MAnchester United í mörg ár, leysti hann af hólmi um helgina.

Erikson segir hins vegar að það sé of mikil byrði fyrir hinn tvítuga Kasper að leysa Isakson af svo snemma á ferlinum. Hans tækifæri muni koma en það verði ekki á þessu tímabili.

Erikson ætlar í staðinn að fá varamarkvörð Ítalska landsliðins, Marco Amelia hjá Livorno, til liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×