Enski boltinn

Rooney með sprungu í beini

Wayne Rooney verður frá næstu vikurnar.
Wayne Rooney verður frá næstu vikurnar. Nordic Photos/Getty

Wayne Rooney, framherji Manchester United og enska landsliðsins, er með sprungu í beini á vinstri fæti og verður væntanlega frá í nokkrar vikur. Hann lenti í samstuði við Michael Duberry, varnarmann Reading, undur lok fyrri hálfleiks í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag og varð að fara af velli fljótlega eftir það. Það kom í ljós í myndatöku strax eftir leikinn hversu eðlis meiðslin voru.

Þetta er mikið áfall fyrir Manchester United og ekki síður enska landsliðið sem á tvo mikilvæga fyrir höndum í undankeppni EM 2008 í byrjun september. Ekki er víst að Rooney verði búinn að ná sér fyrir þá leiki sem eru gegn Rússlandi 8. september og Ísrael 12. september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×