Enski boltinn

Playboystúlka á Anfield

Nikoleta Lozanova hefur vakið mikla lukku í breskum fjölmiðlum.
Nikoleta Lozanova hefur vakið mikla lukku í breskum fjölmiðlum.

Búlgarski U21 landsliðsmaðurinn Nikolay Mihaylov sem gekk til liðs við Liverpool í síðasta mánuði er kannski ekki þekktur fyrir að skora hjá andstæðingunum enda er hann markvörður. Hann er hins vegar mest þekktur fyrir að skora hjá kærustu sinni, Nikoleta Lozanova, enda var hún Leikfélagi ársins hjá Playboy í Búlgaríu árið 2006.

Lozanova hefur vakið mikla athygli síðan Mihaylov gekk til liðs við Liverpool og má búast við því að breska pressan muni fjalla mikið um samband þeirra á næstunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×