Enski boltinn

Aston Villa hefur viðræður við Gordon á morgun

Aron Örn Þórarinsson skrifar
Mynd/AP

Skoska liðið Hearts hefur samþykkt tilboð frá Aston Villa í markvörðinn Craig Gordon og mun leikmaðurinn hefja samningsviðræður við Martin O´Neill, framkvæmdastjóra Aston Villa á morgun. Kaupverðið er talið vera um sjö milljónir punda.

O´Neill hefur lagt mikla áherslu á að finna nýjan markvörð vegna meiðsla aðalmarkvarðar liðsins, Thomas Sörensen. Talið er að O´Neill sjái Gordon þó fyrir sér sem fyrsta markvörð liðsins þar sem hann hefur ekki boðið Sörensen nýjan samning, en Daninn á aðeins eitt ár eftir af núverandi samning sínum.

Þá er O´Neill á höttunum eftir varnarmanninum Curtis Davies frá W.B.A en sá er metinn á átta milljónir punda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×