Framherjinn sterki hjá Tottenham, Mido, segir í viðtali við The Daily Mail í dag að þrjú lið séu á höttunum eftir honum.
"Mér hefur borist þrjú formleg tilboð. Eitt frá Birmingham, eitt frá Sunderland og eitt frá liði sem ég vill ekki nafngreina á þessari stundu," segir Mido í viðtalinu við Daily Mail.
Talið er að þriðja liðið sé Fulham en frá því var greint fyrr í sumar að liðið væri á eftir Egyptanum. Mido hefur fallið hratt niður goggunarröðina hjá Tottenham undanfarið og ekki skánaði staða hans eftir að Darren Bent var fenginn til liðsins á metfé í vor.
Mido: Þrjú lið á eftir mér
