Erlent

Um 150 manns látið lífið í flóðum

Að minnsta kosti 150 manns hafa látið lífið og um 20 milljónir þurft að flýja heimili sín vegna mikilla flóða sem nú geysa í suðaustur Asía. Ár hafa flætt yfir bakka sína og mikil landsvæði farið undir vatn.

Flóðin eru þau verstu í manna minnum. Íbúar Indlands, Bangladesh og Nepal hafa orðið verst úti en þar hefu rignt stanslaust í tuttugu daga. Ekkert lát er á úrkomunni og óttast hjálparstofnanir að fljótlega fari að bera á skort á mat og drykkjarvatni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×